
Góð ráð
Eðlileg vinnsluhljóð
• Mögulega heyrist lágt gutl og suðuhljóð
þegar kælimiðlinum er dælt í gegnum
spíralana eða leiðslurnar. Þetta er í lagi.
• Þegar þjappan er í gangi er kælimiðlinum
dælt eftir rásinni og þá heyrist suð og
sláttur úr þjöppunni. Þetta er í lagi.
• Hitaútvíkkunin gæti valdið því að skyndi-
legt brak heyrist. Það er náttúrulegt,
hættulaust efnislegt fyrirbærii. Þetta er í
lagi.
• Þegar kviknar eða slokknar á þjöppunni
heyrist lágur smellur í hitastillinum. Þetta
er í lagi.
Ábendingar um orkusparnað
• Ekki opna dyrnar oft eða hafa þær opnar
lengur en brýn nauðsyn krefur.
• Ef umhverfishitastigið er hátt, hitastillirinn
er stilltur á lágan hita og heimilistækið er
fullhlaðið, getur verið að þjappan sé
stöðugt í gangi, en það getur valdið því
að frost eða ís hleðst utan á eiminn. Ef
það gerist skal stilla valskífuna á hærri
hita til að leyfa sjálfvirka afþiðnun en í því
felst líka raforkusparnaður.
Ráð varðandi frystingu
Nokkrar mikilvægar ábendingar til að
hjálpa þér að fá sem mest út úr frystingunni:
• hámarksmagn matar sem hægt er að
frysta á 24 klst. er sýnt á tegundarspjald-
inu;
• frystingarferlið tekur 24 tíma. Ekki skal
bæta neinum ófrosnum mat í frystinn á
því tímabili;
•aðeins skal frysta fersk og vel hreinsuð
gæðamatvæli;
• frystið mat í litlum skömmtum til að hann
geti frosið hratt og alveg í gegn og til
þess að seinna sé hægt að afþíða aðeins
það magn sem þarf;
• pakkið matnum inn í álpappír eða plast
og gætið þess að pakkarnir séu loftþéttir;
• ekki láta ferskan, ófrosinn mat snerta mat
sem er þegar frosinn, til að forðast hækk-
un hitastigs þess síðarnefnda;
• magur matur geymist betur og lengur en
feitur; salt minnkar geymsluþol matar;
• vatn frýs og ef þess er neytt strax eftir að
það er tekið úr frystinum kann það að
valda frostbruna á húð;
• ráðlegt er að sýna frystidagsetninguna á
hverjum pakka sem settur er í frystinn til
að hægt sé að fylgjast með geymslutím-
anum.
Ráð varðandi geymslu frystra matvæla
Frystikörfur auðvelda manni að finna rétta
matarpakkann. Ef geyma á mikið magn af
mat er hægt að fjarlægja allar körfurnar
nema neðstu körfuna en hún þarf að vera í
til þess að halda góðu loftstreymi.
Til þess að þetta heimilistæki starfi sem best,
skal:
• gæta þess að frystivara úr búð hafi verið
geymd á fullnægjandi hátt í búðinni;
• tryggja að frystivara sé flutt úr búðinni og
í frystinn á sem skemmstum tíma;
• ekki opna dyrnar oft eða hafa þær opnar
lengur en brýn nauðsyn krefur;
• eftir afþiðnun skemmist matur fljótt og
ekki er hægt að frysta hann aftur;
• ekki geyma matvöru lengur en framleið-
andi vörunnar mælir með.
Meðferð og þrif
Varúđ Takið heimilistækið úr sambandi
áður en það gengst undir viðhald.
Í kælieiningu þessa heimilistækis eru vetnis-
kolefni; því mega aðeins löggildir tækni-
menn framkvæma viðhald og endurhleðslu
á því.
Regluleg þrif
Þrífa þarf búnaðinn reglulega:
• hreinsið innra rýmið og fylgihlutina með
volgu vatni og mildri sápu.
• skoðið reglulega dyraþéttingarnar og
strjúkið af þeim óhreinindi svo að þær séu
hreinar og lausar við smáagnir.
ÍSLENSKA 44
Comentários a estes Manuais