
Innsetning
Framleiðandinn er ekki ábyrgur fyrir neinum
meiðslum á fólki eða gæludýrum eða eign-
atjóni sem hlýst af því að eftirfarandi tilmæl-
um hefur ekki verið fylgt.
Varúđ Lestu
samsetningarleiðbeiningarnar áður en
byrjað er á uppsetningunni.
Ađvörun Uppsetningin þarf að vera í
samræmi við reglur, reglugerðir,
tilskipanir og staðla (reglur og reglugerðir
um öryggi rafmagns, rétta endurvinnslu í
samræmi við reglugerðir o.s.frv.) sem gilda í
notkunarlandinu!
Ađvörun Heimilistækið þarf að vera
jarðtengt!
Ađvörun Hætta á meiðslum af
rafstraumi.
• Það er straumur á rafmagnsinnstungunni.
• Taktu rafspennuna af rafmagnsinnstung-
unni.
• Lausar og óviðeigandi klær og innstungur
geta valdið ofhitnun á rafskautinu.
• Láttu setja klemmutengin rétt upp.
• Notaðu álagsminnkandi klemmu eða
leiðslu.
• Fylgdu skýringarmynd fyrir raftengingu
(hana er að finna neðarlega á eldavél-
inni).
Mikilvægt! Heimilistækið þarf að vera í
vissri lágmarksfjarlægð frá öðrum
heimilistækjum og skápum eða öðrum
einingum, í samræmi við
samsetningarleiðbeiningarnar.
Ef enginn ofn er fyrir neðan eldunarhelluna
skal koma fyrir skilrúmi minnst 20 mm frá
botni eldunarhellunnar.
Ekki nota sílíkonþéttiefni á milli heimilis-
tækisins og vinnuborðsins. Forðastu að setja
heimilistækið upp við dyr og undir gluggum,
þar sem heit eldunarílát gætu ýst út af hell-
unum við það að dyr og gluggar eru op-
naðir.
Aðeins vottuðum þjónustuaðila er heimilt að
setja tækið upp, tengja það eða gera við
það. Notaðu eingöngu upprunalega vara-
hluti.
Rafmagnstenging
Áður en tengt er, athugaðu þá að mál-
spenna heimilistækisins sem sýnd er á merk-
iplötunni sé sú sama og afhendingarspenn-
an frá rafveitunni. Einnig skal athuga afköst
heimilistækisins og ganga úr skugga um að
vírinn sé af réttri stærð fyrir afköst heimilis-
tækisins (sjá kaflann Tæknilegar upplýsing-
ar).
Merkiplatan er staðsett neðarlega á ytra
byrði eldunarhellunnar.
Rafmagnssnúra fylgir ekki með heimilistæk-
inu. Kauptu rétta snúru frá sérhæfðum söl-
uaðila. Fyrir einfasa eða tvífasa tengingu
þarf rafmagnssnúru af gerð H05 BB-F/
H05V2V2-F Tmax 90°C (jafngilt eða
hærra).
Heimilistækið starfar fullkomlega í AC 230
V, AC220V~ eða AC240V~ 50Hz rafkerfi.
Þú þarft að hafa möguleika á aftengingu
sem er innbyggður í föstu lagnirnar. Tengdu
heimilistækið við rafmagn með búnað sem
gerir kleift að aftengja heimilistækið frá raf-
magni á öllum rafskautum með minnst 3 mm
víðu snertuopi, t.d. sjálfvirka aftengingu til
verndar leiðslum, jarðlekarofa eða bræðiv-
ara.
Við tengingu við rafmagn og uppsetningu
tengileiðslna þarf að fara eftir skýringar-
mynd tenginga (hún er staðsett neðarlega á
eldavélinni).
Jarðtengingarleiðslan er tengd við skaut
sem merkt er með tákninu
og þarf að
vera lengri en leiðslur sem bera rafstraum.
Hertu skrúfurnar vel! Að lokum skaltu festa
tengisnúruna með rafmagnssnúruhöldunni
og loka hlífinni með því að þrýsta þétt á
(svo að hún smelli á sinn stað).
ÍSLENSKA 57
Comentários a estes Manuais