
Öryggisleiðbeiningar
Uppsetning
AÐVÖRUN! Einungis til þess
hæfur aðili má setja upp þetta
heimilistæki.
• Fjarlægðu allar umbúðir.
• Ekki setja upp eða nota skemmt
heimilistæki.
• Fylgdu leiðbeiningum um uppsetningu
sem fylgja með heimilistækinu.
• Haltu lágmarksfjarlægð frá hinum
heimilistækjunum og einingunum.
• Alltaf skal sýna aðgát þegar
heimilistækið er fært vegna þess að það
er þungt. Notaðu alltaf öryggishanska og
lokaðan skóbúnað.
• Innsigla skal skorna fleti með þéttiefni til
að koma í veg fyrir að raki valdi þenslu.
• Vernda skal botn heimilistækisins fyrir
gufu og raka.
• Ekki skal setja upp heimilistækið við
hliðina á hurð eða undir glugga. Það
kemur í veg fyrir að heit eldunarílát falli
af tækinu þegar dyrnar eða glugginn er
opnaður.
• Ef heimilistækið er sett upp fyrir ofan
skúffur skal gæta þess að bilið milli botns
heimilistækisins og efstu skúffunnar sé
nægjanlegt fyrir loftsskipti.
• Botn heimilistækisins getur orðið heitur.
Gættu þess að setja óbrennanlegt
aðgreiningarspjald undir heimilistækið til
að koma í veg fyrir aðgang að botni
þess.
Fylgdu samsetningarleiðbeiningunum.
Rafmagnstenging
AÐVÖRUN! Eldhætta og hætta á
raflosti.
• Allar tengingar við rafmagn skulu
framkvæmdar af rafverktaka með tilskilin
starfsréttindi.
• Heimilistækið þarf að vera jarðtengt.
• Áður en nokkur vinna fer fram á
heimilistækinu þarf að taka það úr
sambandi við rafmagn.
• Gakktu úr skugga um að
rafmagnsupplýsingarnar á merkiplötunni
passi við aflgjafann. Ef ekki, skal hafa
samband við rafvirkja.
• Gættu þess að heimilistækið sé rétt
innsett. Laus eða röng rafmagnssnúra
eða kló (ef við á) getur valdið því að
rafmagnsúttakið ofhitni.
• Notaðu rétta rafmagnssnúru.
• Gættu þess að rafmagnssnúran sé ekki
flækt.
• Gættu þess að raflostvörn sé til staðar.
• Notaðu álagsminnkandi klemmu á
snúruna.
• Gættu þess að rafmagnsinnstungan eða
klóin (ef við á) snerti ekki heitt
heimilistækið eða heit eldunaráhöld
þegar þú tengir heimilistækið við
nærliggjandi innstungur
• Notaðu ekki fjöltengi eða
framlengingarsnúrur.
• Gættu þess að rafmagnsklóin (ef við á)
eða snúran verði ekki fyrir skemmdum.
Hafðu samband við viðurkennda
þjónustumiðstöð eða rafvirkja til að
skipta um skemmda rafmagnssnúru.
• Raflostsvörn lifandi og einangraðra hluta
verður að vera fest þannig að ekki sé
hægt að fjarlægja hana án verkfæra.
• Aðeins skal tengja rafmagnsklóna við
rafmagnsinnstunguna í lok
uppsetningarinnar. Gakktu úr skugga um
að rafmagnsklóin sé aðgengileg eftir
uppsetningu.
• Ef rafmagnsinnstungan er laus, skal ekki
tengja rafmagnsklóna.
• Ekki toga í snúruna til að taka tækið úr
sambandi. Taktu alltaf um klóna.
• Notaðu aðeins réttan
einangrunarbúnað:
Línuvarnarstraumloka, öryggi (öryggi
með skrúfgangi fjarlægð úr höldunni),
lekaliða og spólurofa.
ÍSLENSKA
38
Comentários a estes Manuais