Almennt öryggi
• AÐVÖRUN: Heimilistækið og aðgengilegir hlutar þess hitna
við notkun. Auðsýna ætti aðgát til að forðast að snerta
hitaelementin. Halda skal börnum yngri en 8 ára frá tækinu
nema þau séu undir stöðugu eftirliti.
• Ekki nota heimilistækið með viðfestum tímastilli eða aðskildri
fjarstýringu.
• AÐVÖRUN: Eldun án eftirlits með fitu eða olíu á eldunarhellu
getur verið hættuleg og valdið eldsvoða.
• ALDREI reyna að slökkva eld með vatni, heldur skaltu slökkva
á heimilistækinu og hylja logann t.d. með loki eða
eldvarnarteppi.
• VARÚÐ: Eldunarferlið verður að vera undir eftirliti. Stutt
eldunarferli verður stöðugt að vera undir eftirliti.
• AÐVÖRUN: Hætta á eldsvoða: Ekki geyma hluti á
eldunarflötunum.
• Málmhluti eins og hnífa, gaffla, skeiðar og lok skal ekki leggja
ofan á eldunarhellurnar því þeir geta orðið heitir.
• Ekki nota gufuhreinsibúnað til að hreinsa heimilistækið.
• Ef sprungur eru í keramíkfletinum / glerfletinum skal slökkva á
heimilistækinu til að hindra mögulegt raflost.
• Ef rafmagnssnúran er skemmd verður að fá nýja frá
framleiðanda, viðurkenndri þjónustumiðstöð eða svipað
hæfum aðila til þess að koma í veg fyrir hættu.
• AÐVÖRUN: Notaðu aðeins helluborðshlífar sem hannaðar
eru af framleiðanda eldunartækisins eða framleiðandi
heimilistækisins bendir á í notkunarleiðbeiningunum sem
hentugar, eða helluborðshlífar sem innfelldar eru
íheimilistækið. Notkun óviðeigandi hlífa getur valdið slysum.
ÍSLENSKA
29
Comentários a estes Manuais